Ætlaði bara svona að segja ykkur að ættarmótið var mjög skemmtilegt;) Atriðið okkar gekk bara mjög vel og öllum fannst það mjög fínt! Sko ég verð að segja ykkur það að þessi fjölskylda sem var þarna samankomin er svo "tónelsk" að öll skemmtiatriðin um kvöldið voru þannig atriði nema eitt sem var (en það var þó smá söngur í því líka) og við sem höfðum verið búin að skrifa geisladiska til að spila seinna um nóttina þegar fólk færi að dansa en nei, nei, það var ekki einu sinni minnst á það! Það var alltaf "einhver hljómsveit" á sviðinu til 3 um nóttina en þá fór ég að sofa! Semsagt alltaf lifandi tónlist! Það var reyndar líka svoldið fyndið að þegar við komum á föstudagskvöldið ákváðum við að kíja í salinn og kíkja á sviðið og svona og þá voru einhverjir að æfa sig og svo þegar ég sá hljóðfærin streyma inn í salinn sem fólk var að koma með auk þess að þurfa að vita hvaða hljóðnemar væru "einstefnu" hljóðnemar og hver væri "víðóma" þá ákvað ég að labba út og hita mér strax te því daginn áður var ég farin að finna fyrir hálsbólgu...Og alveg þar til´kom að kvöldvökunni á laugardeginum drakk ég svona ca. 10 te- og kakóbolla og fékk mér ískalt staup af íslensku brennivíni ooojjjj, ég sver það ég kúgaðist, en ég vildi þó leggja þetta á mig því ekki vildi ég sleppa atriðinu enda búin að vera að æfa í tvær vikur fyrir. Og núna er ég að fá þessar skammtímalækningar í hausinn því þessa vikuna er ég búina ð vera með bullandi kvef og hausverk takk fyrir! En núna er ég komin í hið langþráða sumarfrí mitt og búinað vera þvílíkt heppin með veður! En þar til seinna, sjáumst...
ÆTTARMóT
Allt fínt í sveitinni!