þriðjudagur, desember 14, 2004
Ammæli á næstu grösum...
...og í tilefni þess býð ég ykkur til veislu þann 21. desember næstkomandi :)
Já, mín er víst loksins að ná ykkur hinum í aldri!! Hehe...
Ykkur saumaklúbbsgellum er hér með boðið (ásamt mökum) í ammælisveislu heima hjá mér þann 21. desember klukkan 20.00! Ég hef ákveðið að hafa bara kaffimeti þetta árið og svo býð ég upp á gos, djús og audda vatn! Annars konar drykkjarföng eru þó að sjálfsögðu velkomin fyrir þá sem það vilja! ;)
Ég bið ykkur endilega að láta mig vita hvort þið komist eða ekki sem fyrst! Þær ykkar sem verða ekki búnar að kommenta hér á föstudaginn fá sent SMS boð þá! Annars þá hlakka ég bara til að sjá ykkur sem flestar!!
XXX
Bryndis Julia at 16:12
fimmtudagur, desember 09, 2004
Hæ sætu spætur!
Ég hlakka svo til að verða búin í prófum þann 14. og fá litlu systur mína heim þann 17.
Annars ætlaði ég bara að benda ykkur á síðu þar sem þið getið fylgst með ferðasögu foreldra minna og séð myndir af Helgu Lan litlu. Gangi ykkur annars vel í prófum, vinnu og útlöndum;o)
Kossar og knús
PS. Ekki gleyma að allir þurfa að koma með tillögu að nafni á saumaklúbbinn í jólaklúbbnum hennar Eyrúnar. Ég hlakka svo til að hafa jólaleik miðað við hvað það var gaman á leikskólanum okkar!
Ósk at 17:07
miðvikudagur, desember 08, 2004
Ferðalag
Haldiði ekki að mín sé á leiðinni til USA!! Ég er semsagt að fara til útlanda í þriðja sinn á þessu ári!:D Pabbi Hannesar er að fara á ráðstefnu í Boston næstu helgi og við förum með :) Við förum á föstudaginn og komum aftur á miðvikudagsmorgun. Oooohhh, hvað það verður fínt að kaupa jólagjafir þar því að dollarinn er bara um 62kr!!! :D Ég fæ frí í vinnunni með því skilyrði að ég vinn til hádegis á föstudaginn og mæti í vinnuna á miðvikudagsmorgunn! Ég verð pínu þreytt en það verður samt þess virði...svona er að vera með harðstjóra sem yfirmann! ;)
Annars er mest lítið að frétta...vildi bara deila þessu með ykkur! ;)
Gangi ykkur öllum ótrúlega vel í prófunum sætu! :)
-Anna Lísa ferðalangur
Anna Lisa at 21:04
fimmtudagur, desember 02, 2004
Saumaklúbbur.
Ég hef ákveðið að hafa saumaklúbbinn á þrijudeginum milli jóla og nýárs sem ku vera 28. desember. Ég var líka að hugsa hvort þið vilduð ekki hafa aftur svona litlu jól??? og hafa bara 500 kall í mesta lagi.
Fyrir þá sem voru í sumarbústað!
Hvernig finnst ykkur að gefa þeim kærleikskúluna. Ég veit að þau eiga kúluna síðan í fyrra og langar mjög í kúluna sem er núna. Mamma getur fengið hana með afslætti í vinnunni þannig að ég held að það væri um 600 kall á mann.
Eyrún at 22:45
Ný manneskja! :D
Hæ, skvíses!
Ég er sko glæný manneskja þessa dagana! Ég keypti mér tölvu, fór í klippingu og keypti mér pils!
Nú er ég að skrifa á nýju tölvuna mína. Ég er sko ótrúlega stoltur fartölvueigandi, með þráðlaust net og alles! :D
Ég fór til Sæunnar í klippingu áðan og Dagbjört þú yrðir voða stolt af mér því það er soldil breyting á mér! :) Ég er enn að venjast því, það tekur smá tíma en ég er mjög ánægð með nýja hárið mitt! :D Svo var ég í Kringlunni áðan og keypti mér pils fyrir jólagleði leikskólans sem er á morgun og Bryndís mín er svo elskuleg að hún lánaði mér flottu skóna sína og boli! Ég verð ýkt pæja! ;) Ég er orðin svo spennt fyrir jólagleðinni á morgun því að þá kemur í ljós hver hefur verið leynivinur manns síðustu 2 vikurnar, hrekkt mann og glatt! Og það skemmtilegasta við þetta er að sjá svipinn á mömmu þegar hún fattar að ÉG er búin að vera leynivinur hennar því hana grunar sko ekkert hver sé með hana! :D Það er sko nógu erfitt að þurfa að vera að laumupúkast í vinnunni með þetta, en hvað þá heima líka! ...það er samt bara gaman! :D
Ef þið eruð búnar að gleyma stafróinu þá er hér leið til að rifja það upp! :D Heyrumst.
Anna Lisa at 22:15