þriðjudagur, desember 26, 2006
Litlu Jólin...verða haldin hátíðleg þann 27. desember næstkomandi. Allir eiga að mæta með pakka að andvirði 1500 kr. Mæting um 8 leitið. Hlakka til að sjá ykkur.
Litli Jólasveininn.
Eyrún at 03:10
laugardagur, desember 23, 2006
Gleðileg jól stelpur mínar og takk fyrir það gamla! Hafið það ofboðslega gott yfir jólin og borðið nú vel af öllum kræsingunum sem verða í boði!!! Sjáumst hressar og kátar sem fyrst...Jólakveðja..Marta María:)
Marta María at 23:46
miðvikudagur, desember 20, 2006
Þessi sæta stelpa á afmæli í dag!!
Til hamingju með afmælið Bryndís mín! -Anna Lísa
Anna Lisa at 20:05
laugardagur, desember 09, 2006
Bara ég aftur...Fyrst ég er nú að þessu nethangsi þá setti ég inn tengla á Myspace-síður okkar sem eiga svoleiðis hér á hliðinni! :Þ
Anna Lisa at 16:38
Hrumpfff....
Oh, ég ákvað að skella mér í bað þar sem ég var öll svo stíf eftir prófið í morgun!
Ég kveiki á kertum og á útvarpinu, set á “Jólastöðina okkar allra, Létt-Bylgjuna” tilbúin að slaka á og hlusta á skemmtileg jólalög og komast í jólagírinn!
En ég held nú ekki!
Það eina sem var spilað á þessari stöð voru auglýsingar, væmið amerískt kántrí-”jólalag” og vooond íslensk jólalög sungin af óþekktum (af ástæðu myndi ég segja) íslenskum söngkonum sem syngja:
Jóhólihihin kohohoma vóhóúúú...jéé...vooóó..............je..
Pirrr...ég sem hékk í baðinu þar til tærnar á mér voru orðnar krumpaðri en Eyrúnar táslur!!
Ætla nú að finna almennilegan jóladisk og reyna að bæta skaðann!
-Anna Lísa Sveskja! :Þ
Anna Lisa at 15:44
Mmmmm.....dah!

Oh hvað það er yndisleg tilfinning að vera búin í ömurlegasta og leiðinlegasta prófinu!! :D
Það er reyndar ekki alveg jafn góð tilfinning að fara í próf og vita að það eru ca.10% líkur á að maður nái... ég ákvað samt að skella mér, vera bjartsýn og vona það besta og hey...líkurnar hafa aukist í 20-30% !! :Þ
Það er þungu fargi af mér létt... í bili allavega! ;)
Í dag ætla ég bara að njóta þess að taka til í herberginu mínu (er það hægt?) og setja jólaseríur í gluggan minn! ... Kristín fylgstu vel með! :Þ
Hafið það gott dúllurassgötin mín og gangi ykkur vel í prófunum! ;) -Anna Lísa-
P.s ef þið viljið rifja upp gamlar og góðar stundir með Línunni, þá getið þið kíkt hér! ;)
Anna Lisa at 13:06
þriðjudagur, desember 05, 2006
Ég ákvað að spreyta mig á þessu líka...svona fyrst ég á að vera að gera eitthvað annað... ;)IF YOUR LIFE WAS A MOVIE, WHAT WOULD THE SOUNDTRACK BE? (Viltu vinur minn vita, ef líf þitt kvikmynd væri, hvurskyns músík hún bæri?)So, here's how it works:(Soddan virkar havaríið )1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)(Opn þinn tónsarp (iTóna, alvöru pc mp3spilara, drasl mp3 spilara, iBú, o.s.frv)2. Put it on shuffle(Lát á vanröðun)3. Press play(Þrýst á leika)4. For every question, type the song that's playing(Sérhverri spurningu skal fylgja það lag sem leikið er á þeim tíma)5. When you go to a new question, press the next button(Þegar næsta spurning er tækluð, þrýstu á "Næsta" hnappinn)6. Don't lie and try to pretend you're cool...(Berðu ekki ljúgvitni um eiginn nördaskap).Og hér er svo afraksturinn úr mínum "tónsarpi":
Opnunartitlar: Ferry 'cross The Mersey - Gerry and the Pacemakers (Life goes on day after day...viðeigandi...)Við uppvakningu: Sing - The Carpenters (rólegt og gott en samt svona happy...gott að vakna í góðu skapi :) )Fyrsti skóladagurinn: Elenore - The Turtles (uuuu...weird stalker song...passar kannski ekki alveg...samt skemmtilegt)
Verða ástfanginn: With A Girl Like You - The Troggs (jújú...kvarta ekkert brjálað...)
Slagsmálalagið: With or Without You - U2 (ég er með í dramatík vinahópsins...)
Sambandsslit: Barbara Ann - The Beach Boys (já...ég er alla vega ekki sorgmædd... :-/)
Prom: Bad To Me - Billy J. Kramer (alveg hægt að dansa við það...)
Daglegt líf: Winchester Cathedral - New Vauderville Band (eitt steiktasta lag í heiminum...á vel við)Við andlegt áfall: Lightnin' Strikes - Lou Christie (ekki mjög slæmt áfall giska ég á...)
Keyra í bíl atriðið: Heroes And Villains - The Beach Boys (vonandi stutt atriði...ekki besti Beach Boys slagarinn...)Flassbakk: Little Old Lady From Pasadena - Jan & Dean (þokkalegt flassbakk til dagana þar sem mér fannst gaman að taka til...jebb gaman!)
Ná saman á ný við kærastann: Yesterday Once More - The Carpenters (hljómar bara ljómandi ;) )Brullaup: I Need To Be In Love - The Carpenters (textinn ekki eins uppörvandi og nafnið ber með sér...)
Barnsfæðing: Side - Travis (okei...einhver að vera fyndinn...)
Lokabardaginn: Da Doo Ron Ron - The Crystals (greinilega mjög alvarlegur bardagi...hehe)
Dauðasena: I'll never fall in love again - Páll Óskar og Millarnir (ég er greinilega kát með að maðurinn minn hafi drepið mig...??)
Jarðarfaralag: Don't Treat Me Like Child - Helen Shapiro (hef held ég aldrei hlustað á allt lagið til enda...en pottþétt ekki viðeigandi)
Lokatitlar: Somebody To Love - lag úr Hárinu (ég hef pretty much átt sorglegt og eftirsjármikið líf...greyið litla Bryndís... :( )Jæja þá er sorglegi listinn minn kominn...ekki mikið af lögum sem ég hlusta á...ætti kannski að fara í gegnum ipodinn minn...miklar pælingar...ég myndi ekki borga mig inn á þessa mynd...Oh well...
Bryndis Julia at 17:01