þriðjudagur, ágúst 30, 2005
Jæja skutlur!
Þá er málið að fara að taka fram prjónana eftir langt sumarfrí!
Saumaklúbburinn minn verður laugardaginn 3. september kl. 9 og ég hlakka til að sjá allar sem eru á landinu! Endilega látið mig samt vita svo ég viti að þið hafið lesið þetta. (so they know we know they know)
Sjáumst hressar
Ósk
Ósk at 10:33
fimmtudagur, ágúst 18, 2005
Singstar!Já, það er rétt gott fólk. Það verður Singstar partý heima hjá mér á laugardagskvöldið. Nú hugsiði kannski: "Er hún rugluð að halda partý á menningarnótt?" og svarið er nei!
ekkert meira en venjulega... Því að partýið mun byrja með fyrra fallinu og síðan verður farið í bæinn á tónleika og flugeldasýningu. Og þar sem ég er, líkt og Macauley Caulkin forðum, ein heima þá er þeim sem geta og/eða vilja boðið í sleep-over með meiru á eftir. Svo spurningin er bara:
Ert "þú" geim? gæsalappir í boði Subway ;)
Kristín at 18:57
þriðjudagur, ágúst 16, 2005
Æææ hvað lífið er ljúft..Já hvað er gott að vera komin loksins í langþráða fríið mitt...svosem ekki mikið sumarveður úti, rigning og rok, en mér er alveg sama, var til dæmis í dag undir teppi og las í bók meðan rigningin dundi á glugganum. En svo er svona ýmislegt sem ég þarf að gera, t.d. að þurrka ryk úr hillunum í herberginu mínu, skipta á rúminu, ryksuga og svona þið vitið, verður að líta vel út áður en skólinn byrjar í lok mánaðarins.Ég var í brúðkaupi um helgina hjá vini hans Grétars, fyrsta brúðkaupið í vinahóp hans, og það var svooooo gaman. Stefán Hilmars og Eyvi spiluðu 3 sæt lög í kirkjunni og svo var veisla þar sem var ótrúlega góður matur og vín með honum og súkkulaðibrúðkaupskakan var ÓMÓTSTÆÐILEG! Grétar var veislustjóri og stóð sig svo vel að aðrir í vinahópnum eru búnir að "panta" hann fyrir sín brúðkaup (hvenær sem þau verða) ;)Fyrir þá sem vissu það ekki fór ég fimmvörðuhálsinn um verslunarmannahelgina, semsagt á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls, og JÁ ég er hreykin af sjálfri mér enda hef ég ekki einu sinni farið Esjuna. Ég þurfti að glíma við lofthræðslu enda kannski ekki skrítið þar sem ég þurfti að halda mér í keðjur utan á bergi á tímabili fikrandi á örmjórri syllu, vitandi að um 50 metrar væru fyrir neðan mig og það þyrfti ekki að spurja að leikslokum ef eitthvað myndi klikka þarna...já ég get sagt það að ég átti ekki von á þessu þegar ganga mín hófst fyrr um daginn get ég sagt ykkur og þegar (mér EKKI til mikillar gleði) að stálpinnarnir sem héldu í keðjurnar voru búnir að losna á nokkrum stöðum (ekki mjög traustvekjandi) þannig að keðjurnar héngu þið vitið svona langt niður, þá hugsaði ég með tárin í augunum "hvað er ég komin útí??!" en með þrjósku og "ÉG SKAL" hugsunarhætti reddaðist þetta og váááá hvað ég var fegin þegar þessi kafli var búinn. Fimmvörðuhálsgangan er allavena 1 það svona eftirminnilegasta sem ég hef gert í sumar.Dagbjört manstu þegar þú bloggaðir um hvað væri vondur dauðdagi?? Allavena má bæta við á þann "lista" flugslys eins og á Grikklandi..úff ekki gaman að heyra svona fréttir þegar maður er ekki ÆSTUR í að fljúga!Jæja ég hef ekkert farið til útlanda í sumar, það verður bara að bíða betri tíma..en er þessa dagana að hugsa um iPod í staðinn, langar svolítið mikið í svoleiðis græju sko;)Þar til næst, have fun!
Marta María at 20:01
fimmtudagur, ágúst 04, 2005
Flutningar Eftir að hafa búið á sama staðnum í 13 ár er ég að fara að flytja í annað sinn á rúmum 2 árum! Mamma og pabbi vilja hafa Pétur Axel í sínu skólahverfi svo hann sé nær skóla og vinum og eru búin að festa kaup á íbúð beint á móti Háteigsskóla...í næsta húsi við hana Kristínu! :) Við Kristín eigum semsagt eftir að geta vinkast á milli svalanna okkar! ;) Já gaman að þessu....Ég hlakka til að sjá ykkur í afmælinu hjá Kristínu á laugardaginn! (Kristín er þvílíkt vinsæl í þessari færslu minni! ;) )-Lísa Skvísa :)
Anna Lisa at 18:42
þriðjudagur, ágúst 02, 2005
Nú er komið að því!Eftir eins og hálfs mánaðar (tæknilega eins árs og eins og hálfs mánaðar) bið ætla ég að halda upp á afmælið mitt :)! Næst komandi laugardag, þann 6. ágúst er ykkur sem sagt boðið hiem til mín í veitingar og skemmtilegheit klukkan átta um kvöldið. Ef að vel viðrar þá ætla ég að fara upp í Hlíð (sumarbústaðinn minn) fyrr um daginn og allar sem vilja/geta eru velkomnar með :). Endilega látið í ykkur heyra með símtölum, sms-um eða kommentum hér á síðunni um það hvort þið komist eður ei. Ég ætla svo að hafa samband one-on-one svo að þetta fari ekki framhjá einum ;).
Kristín
Kristín at 19:44