sunnudagur, júlí 23, 2006
¡Hola!Vil bara kasta kvedju á ykkur hédan úr hitanum á Spáni! :)
Allt rosa gott ad frétta...er alveg ad njóta thess í botn ad liggja á strondinni eda vid sundlaugarbakkan ad lesa og med i-podinn í eyrunum! :)
Kossar og knús frá okkur Hannesi ;)
Anna Lisa at 20:00
laugardagur, júlí 15, 2006
Ég er bara í sjokki... SÚKKULAÐISJOKKI!!!Takk fyrir gærkvöldið stelpur :) Verðum að endurtaka þetta við tækifæri, helst sem fyrst :)
Eyrún at 13:21
mánudagur, júlí 10, 2006
Sælar!Á morgun, þriðjudaginn 11. júlí klukkan 20:00, er plönuð hópferð í bíó. Þar skal sjá The Lake House með Söndru Bullock og Keanu Reeves.

Allar sem vettlingi geta valdið ættu að sjálfsögðu að skella sér með. Það er ekki búið að ákveða með hvaða bíó verður fyrir valinu en það kemur bara í ljós á morgun :).
Vonandi komast sem flestar!
Knús, Kristín
Kristín at 20:25
miðvikudagur, júlí 05, 2006
Var að enda við að setja inn á tölvuna mína myndir úr nýju myndavélinni minni frá "hættuförinni";)..set inn nokkrar hér..alltaf gaman að skoða myndir!
Við rætur fjallsins..gangan að byrja..stolt með splunkunýja göngustafi..;)

..nú fór snjórinn að taka við..

..og í ca. 1400 m hæð var síðasta stopp fyrir toppinn og brjálað veður..
Vonandi höfðuð þið gaman af:)
Love you.
Marta María at 23:31
Hekla pekla sekla tekla..Já nú er maður búinn að fara á eitt af frægustu eldfjöllum heims, Heklu, og gekk bara vel. Sunnudagsmorgun síðastliðinn var vaknað kl. hálf átta, klárað að pakka nestinu og klætt sig í svona "útivistarföt". Við Grétar eyddum miklum vangaveltum í það hvort við værum ekki með of mikið af drykkjum enda nokkrar hálfslítersflöskur fljótar að þyngja bakpoka hjá fólki sem er að fara að labba í 1500 metra hæð..anyways eftir að hafa þá tekið svona tvær flöskur uppúr áttum við samt nóg eftir af nesti og drykkjum handa öllum Hekluförunum. Þá var haldið á BSÍ og rúta full af 30 manns og tveimur fararstjórum hélt af stað.. á leiðinni vorum við frædd um eldfjallavirkni Heklu o.s.frv. og að gosin hjá Heklu gerðust yfirleitt fyrirvaralaust..OK ekki alveg það sem ég vildi heyra þarna en alltílæ.. Veðrið var allskonar, fyrstu metrana var fínt veður og við borðuðum nesti í sól og logni, svo eftir að ofar dró þá gengum við bara á snjó, og haglél og rok og frost var allsráðandi og þetta var ýkjulaust hið versta vetrarveður! Þegar fararstjórinn leit á GPS staðsetningartækið sitt og sagði að við værum ekki alveg komin á efsta punkt Heklu héldum við áfram uppávið í brjáluðu veðri og þá fór ég að hugsa.."OK mér er orðið ANSI kalt á puttunum, og hvað ef þeir fara að kala!?og ég verð orðin svo dofin að ég mun ekki taka eftir því!?og þá þyrfti að taka puttana af!?og ég meina, þetta er hægri hendin!?" En upp á topp komumst við og þá var VOÐA gaman og allir VOÐA stoltir þótt veðrið væri alveg "kreiisíí"! svo var haldið niðuráleið og staldrað stutt við hjá einum af gosgígnum sem gaus árið 2000 og hann var ekki stór skal ég segja ykkur, maður átti meira að segja að geta fundið hitann ennþá í hrauninu í kring. Og nú hugsa kannski e-r: ææ leiðinlegt að hafa ekki fengið útsýni á toppnum, en ég get huggað mig við það að einn fararstjórinn sagði mér að hún væri búin að fara nokkrum sinnum og aldrei fengið útsýni og einnig hafði hún sömu sögu að segja af öðrum fararstjóra sem í 9. eða 11. skipti fékk útsýni af topp Heklu svo það þyrfti að vera mjög sérstakt veður til að fá gott útsýni!
Marta María at 18:53
mánudagur, júlí 03, 2006
Halló Gellur =)Ég sem sagt ákvað loksins að hafa saumaklúbb á föstudaginn næstkomandi þann 7. júlí. Vonandi komast sem flestar =)Hlakka til að sjá ykkur.....Ingibjörg =)
Inga at 15:42