miðvikudagur, september 28, 2005
HÆÆÆÆÆ!
Vildi deila gleði minni með ykkur,var að fá ipod og ég ELSKA HANN!!!VÍÍÍÍÍÍ:):):)
Sjáumst á laugardaginn...hlakka til að sjá ykkur...
Marta María at 22:10
laugardagur, september 24, 2005
Jæja skvíses...
Næsta laugardag, 1. október, verður saumó hjá mér...eigum við að segja kl. 20:30?!
Endilega látið mig vita hvort þið komist.
En hvernig var annars með myndirnar sem voru teknar af okkur hjá Kristínu? Væri e-r kannski til í að setja þær í myndaalbúm á netinu eða senda mér þær á e-maili??
Anna Lisa at 19:26
föstudagur, september 23, 2005
Klukk!!!!!!Þá er komið að mér að taka þátt í þessum sérkennilega leik....;)1. Mér finnst ótrúlega hressandi að labba í strætóskýlið á morgnana þegar ég er að fara í skólann en finnst ekki gaman þegar ég er komin Í strætó og þá EF ég fæ sæti að ég finn andfýlu frá manneskju sem situr fyrir aftan mig sem hefur greinilega ekki borðað morgunmat..2. Ég verð að fara bloggrúnt helst hvern einasta dag annars finnst mér ég búin að missa af einhverju...eins er að segja um dagblöðin, finnst ég ÓMÖGULEG ef ég hef ekki náð að skoða moggann, fréttablaðið og Blaðið áður en ég fer að sofa og svo má ekki gleyma Birtu! Annars finnst mér ég vera búin að missa tengslin við umheiminn..3. Ég þoli ekki jafnréttisstefnuna í klósettmálum sem er í gangi í Öskju náttúrufræðahúsi. Þar eru klósettin fyrir BÆÐI kynin sem ég hef ekki tekið eftir í öðrum skólahúsum! Ég þoli ekki þegar mér er mikið mál og hleyp á salernið og þarf þá að byrja á að setja setuna niður..ARRRGGGG...það vita það allir að það væri einfaldara og hreinlegra ef salernin væru aðskilin, ósköp einfalt...ég meina karlmenn og konur pissa ekki eins...4. Síðan ég var lítil hef ég hugsað orð afturábak (svosem búin að minnka það núna), t.d. ef sagt var ljósakróna hugsaði ég "anórkasójl"..merkilegt ekki satt??5. Mér finnst voða gaman að rifja upp 2. sópran kórröddina, við mörg lög sem við sungum þá, þegar ég er í sturtu...Jæja, vona að þetta hafi glatt ykkar litlu hjörtu...Sjáumst elskurnar...ykkar..............
Marta María at 22:19
...klukk...Jæja stelpur, nú er komið að okkur þökk sé Kristínu og Dagbjörtu..."Klukk er internetfár sem tröllríður bloggheimum þessa klukkutímana og felur í sér að viðkomandi fórnarlamb klukks á að skrifa fimm handahófskennd persónuleg atriði (sem hinn sótsvarti almúgi vissi ekki fyrir væntanlega) og klukka svo nokkur stykki bloggara til viðbótar."Here it goes...1. Ég vorkenni mér alveg ótrúlega mikið þessa dagana! Hannes er búin að vera úti í USA í rúma viku, og kemur ekki aftur fyrr en eftir HEILA viku í viðbót!! :( Mér finnst ég ótrúlega vængbrotin....en lifi þetta nú alveg af! ;)2. Ég les alltaf Moggann og Fréttablaðið aftur á bak en ég les tímarit (og bækur nottla) á réttan hátt! Ég klæði mig líka alltaf í vinstri sokkinn fyrst...hitt finnst mér bara óþægilegt!3. Ég fjárfesti í fyrsta grænakortinu mínu á síðasta mánudag og er stoltur eigandi. :)4. Ég er ótrúlega ömurlega léleg að læra, mér hefur alltaf gengið ágætlega í skóla, en ég hreinlega kann ekki að læra skipulega. Í byrjun hverrar annar hef ég ákveðið að gera e-ð í þessu og fara að skipuleggja mig betur, en aldrei gerist neitt....fyrr en núna! Ég skráði mig á námstækninámskeið uppi í Háskóla og sé fram á ótrúlega bjarta og góða lærdómstíma! ;)5. Eitt það óþægilegasta sem ég veit er að klóra í flísar, eða á milli þeirra! Ef ég er t. d. að þvo á mér hárið í sturtunni og rekst rétt svo í vegginn...*oh hrollur*... Enn verra finnst mér samt að rekast með neglurnar í sundlaugaflísarnar, ég get verið með hroll í klukkutíma eftir á! ...*hrollurhrollurhrollur* (ég sit grínlaust með gæsahúð bara af því að skrifa um þetta!)... nú ætla ég að klukka Þóru Hrund! ;)Hver ætlar svo að vera næst??
Anna Lisa at 14:28
þriðjudagur, september 20, 2005
HeilsuklúbburinnÉg held að maður þurfi bara að ákveða hlutina stundum til að það verði að þeim og því hef ég ákveðið að hafa heilsuklúbbinn á laugadagskvöldið, við gætum kannski spilað líka ef okkur langar til. Allavegana látiði mig þá vita hverjir komast :)
Þar til síðar...
Eyrún at 17:29
miðvikudagur, september 14, 2005
Tíst, tíst, tíst....Svona lít ég út í dag...allavega helmingurinn á mér! Ég fór í endajaxlatöku í dag og það gekk e-ð brösulega að ná öðrum jaxlinum þ. a. ég er ótrúlega bólgin öðrum megin í andlitinu en finn ekki fyrir þessu hinum megin! ...gaman að þessu! ;)
Ég veit samt hvort ég líti verr út núna eða á þessari mynd...OMG ég er eins og síðhærður strákur! Bara svona í gamni bendi ég ykkur líka á þessar, þessar og þessar myndir! Þið elskið mig örugglega út af lífinu fyrir að grafa þetta upp...muhahahaha :D
Tíst, tíst, tíst
Anna Lísa Hamstur(Allir að vera duglegir að kommenta svo! ;))
Anna Lisa at 21:30