fimmtudagur, nóvember 20, 2008
"Við höfum búið hér í ár"-partýTil að fagna því að það er ár síðan við fluttum inn þá viljum við hér með bjóða ykkur og ykkar í teiti :)Teitin mun hefjast kl.15:00 næstkomandi laugardag, 22.nóvember, og standa fram eftir nóttu! Mætingartími er því mjög frjáls enda bæði fyrir ættingja og vini ;)Vonumst til að sjá sem flesta,BogS
Bryndis Julia at 16:01
miðvikudagur, október 01, 2008
Afmælisboð
Jæja þá ætla ég loksins að halda upp á afmælið mitt þó fyrr hefði verið. Teitið verður sem sagt laugardaginn 11. október kl 20.00. Munið að ég er búin að færa mig um set í Hafnarfirðinum og á núna heima á Bjarkarvöllum 5c íbúð 105. Vinsamlegast kommentið hvort þið komist. Hlakka til að sjá ykkur sem flestar :)
Inga
Inga at 13:41
sunnudagur, september 14, 2008
SunnudagshittingurNæstkomandi sunnudag kl 15:00 erum við að fara í dekur í Bláa Lóninu. Ef einhver vill koma með okkur (í dekur eða í Bláa Lónið) þá væri það mjög gaman. En ef þið viljið ekki koma með þá vorum við að hugsa hvort væri ekki gaman að hittast og borða einhversstaðar saman um kvöldið. Hvað segið þið um það?
Væri gaman að fá hugmyndir af stað til að borða í kommentin
Kveðja,
Eyrún og Dagbjört
Eyrún at 17:50
mánudagur, ágúst 25, 2008
InnflutningssamkomaÁ sunnudaginn næsta ætla ég að bjóða ykkur í smá innflutningsteiti til mín :) Heimilisfangið er það sama og áður en gengið inn í kjallarann þeim megin sem bílastæðið er. Gleðin hefst uppúr 19:30 og boðið verður upp á léttar veitingar.
Makar eru velkomnir en hafa verður í huga að plássið er frekar lítið.
Hlakka til að sjá sem flesta
Kveðja,
Eyrún Skólastelpa
Eyrún at 20:21
fimmtudagur, ágúst 07, 2008
Hverjar vilja koma í bíó í kvöld kl. 21:00 í Háskólabíó á The Dark Knight???
Veit að þetta er mikill fyrirvari :p
Bjarney at 19:37
laugardagur, júlí 12, 2008
Íþróttadagskráin okkar :)Jæja stúlkur mínar, þá er komið að næstu atburðum íþróttadagana okkar :)Á morgun sunnudag er í boði að fara í Reykjadal sem er rétt hjá Hveragerði og baða sig í heitri á...voða kósý :) Það er smá ganga þangað sem er góð upphitun fyrir Esjugöngu sem farin verður kl.18:00 á mánudaginn!Ef einhver getur verið á bíl á morgun og keyrt í átt að Hveragerði væri það kúl...annars er í boði að fara hjólandi ef einhver er til í það!?!?Endilega kommentið og látið vita hvort þið komist :)Ykkar íþróttaálfur
Bjarney at 22:54
mánudagur, júní 16, 2008
Jæja Skvísur
Ég er loksins búin að stofna reikning svo við getum byrjað að safna fyrir útanlandsferðunum okkar =) Ég var að pæla hvort við ættum ekki að byrja á 1.000 kr á mánuði út þetta ár og hækka svo upp í 2.000 kr á næsta ári þ.s. við ákváðum að gefa ekki afmælisgjafir þá. Hvernig lýst ykkur á það?
Þetta er verðtryggður reikningur sem er lokaður í 3 ár en konan í bankanum sagði að það væri ekkert mál að taka peningana út fyrr ef við viljum. Lét upplýsingarnar fylgja með í sms-inu til ykkar =)
Inga
Inga at 18:09