Utanbæjarpakk
Bjarney
Ósk


Póstur - MSN
Janúar= Hildigunnur
Febrúar= Tóta
Mars= Bryndís
Apríl= Kristín
Maí= Inga
Júní = Anna Lísa
Júlí = Bjarney
Ágúst= Ósk
September= Marta María
Október= Dagbjört
Nóvember= Eyrún
Desember= Ásgerður


Við
Ásgerðarblogg
Bjarneyjarblogg
Dagbjartarblogg
Eyrúnarblogg
Ingublogg
Kristínarblogg
Ósk og Sverrir


Vinir og vandamenn
Ásdís Eir
Elísabet Ósk
Lydía Ósk
MR-skvísur
Rannveig rosalega
Silvia og co.
Solla svakalega
Sóldís Lilja
Þóra Hrund í Århus


Litlu krílin
Írena Ósk
Lydíuprins


Myspace-in okkar
Anna Lísa
Bjarney
Bryndís
Dagbjört
Eyrún
Hildigunnur
Ingibjörg
Kristín


Daglega
Eyjan.is
Mbl.is
Vísir.is
Rúv.is
Háskólinn


Myndir
Bryndísarmyndir
Kristínarmyndir
Önnu Lísu myndir
Myndir 1
Myndir 2
Okkar myndir


Bloggdót
Fáðu þér blogg
HTML kennsla
Fáðu þér myndaalbúm

Golden oldies
Júní 2003
Júlí 2003
Ágúst 2003
September 2003
Október 2003
Nóvember 2003
Desember 2003
Janúar 2004
Febrúar 2004
Mars 2004
Apríl 2004
Maí 2004
Júní 2004
Júlí 2004
Ágúst 2004
September 2004
Október 2004
Nóvember 2004
Desember 2004
Janúar 2005
Febrúar 2005
Mars 2005
Apríl 2005
Maí 2005
Júní 2005
Júlí 2005
Ágúst 2005
September 2005
Október 2005
Nóvember 2005
Desember 2005
Janúar 2006
Febrúar 2006
Mars 2006
Apríl 2006
Maí 2006
Júní 2006
Júlí 2006
Ágúst 2006
September 2006
Október 2006
Nóvember 2006
Desember 2006
Janúar 2007
Febrúar 2007
Mars 2007
Apríl 2007
Maí 2007
Júní 2007
Júlí 2007
Ágúst 2007
September 2007
Október 2007
Nóvember 2007
Desember 2007
Janúar 2008
Febrúar 2008
Mars 2008
Apríl 2008
Maí 2008


miðvikudagur, september 17, 2003

Hæ hæ allir
Eftir langa umhugsun hef ég ákveðið að skrifa aftur eitthvað úr ferðasögunni frá Spáni fyrst sú síðasta birtist á óskiljanlegu tungumáli. Ekki að það væri ekki hægt að segja hana í einhverjum saumaklúbbnum heldur af því að sumar dvelja í útlöndum;) Jæja allavena.....
það var ótrúlega gaman og tíminn fljótur að líða! Við gerðum flest þetta týpíska eins og að fara út að borða á hverju kvöldi, labba framhjá götusölunum við ströndina á hverju kvöldi og kíkja á aðalgöngugötuna, sem heitir San Miguel, þar sem tyrkneskir teppasölumenn gerðust ansi ágengir við að reyna að selja okkur gólfteppi (þeir voru farnir að þekkja okkur) og einn sölumaðurinn gerðist meira svo ágengur við að reyna að selja að til að sýna hve mikil gæðateppi þetta væru tók hann upp kveikjara og reyndi að kveikja í teppinu..hahaha:) Já hótelið okkar var mjög vel staðsett eða semsagt alveg við ströndina og rétt hjá aðalgöngugötunni sem lá í miðbæinn. Þarna var líka allt til alls eins og á svona sólarstöðum og meira að segja mini-golf sem við prófuðum en þrautirnar á brautunum voru eftirlíkingar af svona frægu eins og Eiffel-turninnn, Litla hafmeyjan, Frelsisstyttan, strumpahús og fleira. Þá fórum við í dýragarð, í tívolí og tókum lest til borgarinnar Malaga og skoðuðum okkur um þar. Eitt af því skemmtilegasta sem við gerðum voru ferðir með fararstjóra í Alhambra-höllina rétt hjá Granada og til Gíbraltar. Þessu hefði ég ALLS EKKI viljað missa af! Til að reyna að gera langa sögu stutta þá bjuggu Márar, sem voru múslimar, í Alhambra þar til �sabella og Ferdinand, sem voru kristin, tóku völdin og komu þar á kristni. T.d. var einn salurinn í höllinni móttökusalur þar sem konungshjónin tóku á móti Kristófer Kólumbus sem vildi fá styrk frá konunshjónunum til að sigla.....æ þið vitið fjólubláa sögubókin! Gíbraltar-ferðin var líka frábær, þar hafa Bretar haft yfirráð síðan ca 1711 og þar er því allt breskt, rauðir póstkassar, rauðir símaklefar og löggur með svarta, háa húfu með stjörnunni á þið vitið. Við fórum í rútu upp Gíbraltarklettinn þar sem tóku á móti okkur fyndnustu og mest forvitnu apar sem ég hef séð! Einn stal t.d. ís frá einum túristanum og svo hoppuðu þeir ofan á rúturnar og reyndu svo að troða hausnum í gegnum gluggarifu á rútunni á meðan við keyrðum upp, en það var mikið hlegið að þessu! Þarna skoðuðum við líka helli sem Bretar höfðu fyrirhugað að hafa sem herspítala í seinni heimsstyrjöldinni en ekkert varð úr. Frá Gíbraltar sáum við meira að segja yfir til Afríku því það var svo gott skyggni! Jæja, ég gæti sagt meira og meira frá öllu en læt þetta nægja;)
En yfir í annað, nú er ég byrjuð að vinna á slysa- og bráðadeild í Fossvogi það er fínt, mjög fín tilbreyting auk þess sem maður lærir örugglega svoldið á að vinna á svona stað. Maður getur átt von á ýmsu svo maður verður vonandi smám saman að byggja sig upp til að geta séð ýmsa hluti.
En já sjáumst við fyrsta tækifæri og vonandi verður næsti saumaklúbbur ekki þegar ég er að vinna því ég vinna aðra hverja helgi:/
Kiss og knús:)
Marta María

Marta María at 19:37


Comments: Skrifa ummæli