Utanbæjarpakk
Bjarney
Ósk


Póstur - MSN
Janúar= Hildigunnur
Febrúar= Tóta
Mars= Bryndís
Apríl= Kristín
Maí= Inga
Júní = Anna Lísa
Júlí = Bjarney
Ágúst= Ósk
September= Marta María
Október= Dagbjört
Nóvember= Eyrún
Desember= Ásgerður


Við
Ásgerðarblogg
Bjarneyjarblogg
Dagbjartarblogg
Eyrúnarblogg
Ingublogg
Kristínarblogg
Ósk og Sverrir


Vinir og vandamenn
Ásdís Eir
Elísabet Ósk
Lydía Ósk
MR-skvísur
Rannveig rosalega
Silvia og co.
Solla svakalega
Sóldís Lilja
Þóra Hrund í Århus


Litlu krílin
Írena Ósk
Lydíuprins


Myspace-in okkar
Anna Lísa
Bjarney
Bryndís
Dagbjört
Eyrún
Hildigunnur
Ingibjörg
Kristín


Daglega
Eyjan.is
Mbl.is
Vísir.is
Rúv.is
Háskólinn


Myndir
Bryndísarmyndir
Kristínarmyndir
Önnu Lísu myndir
Myndir 1
Myndir 2
Okkar myndir


Bloggdót
Fáðu þér blogg
HTML kennsla
Fáðu þér myndaalbúm

Golden oldies
Júní 2003
Júlí 2003
Ágúst 2003
September 2003
Október 2003
Nóvember 2003
Desember 2003
Janúar 2004
Febrúar 2004
Mars 2004
Apríl 2004
Maí 2004
Júní 2004
Júlí 2004
Ágúst 2004
September 2004
Október 2004
Nóvember 2004
Desember 2004
Janúar 2005
Febrúar 2005
Mars 2005
Apríl 2005
Maí 2005
Júní 2005
Júlí 2005
Ágúst 2005
September 2005
Október 2005
Nóvember 2005
Desember 2005
Janúar 2006
Febrúar 2006
Mars 2006
Apríl 2006
Maí 2006
Júní 2006
Júlí 2006
Ágúst 2006
September 2006
Október 2006
Nóvember 2006
Desember 2006
Janúar 2007
Febrúar 2007
Mars 2007
Apríl 2007
Maí 2007
Júní 2007
Júlí 2007
Ágúst 2007
September 2007
Október 2007
Nóvember 2007
Desember 2007
Janúar 2008
Febrúar 2008
Mars 2008
Apríl 2008
Maí 2008


sunnudagur, september 07, 2003

Hæ hæ
Jæja nú er maður kominn aftur til �slands og það er náttúrulega alltaf jafn gaman. � Spáni var ótrúlega gaman og tíminn leið hratt eins og gerist og gengur þegar maður skemmtir sér. Hótelið okkar var frábærlega staðsett eða alveg við ströndina og á hverju kvöldi röltum við eitthvað, að kíkja á götusalana, á veitingastaði auðvitað og svo prófuðum við tvisvar svona mini-golf, það var mjög gaman og þrautirnar á golf-brautunum voru eftirlíkingar af svona þekktu eins og skakki turninn í piza, eiffel-turninn, strumpahús, frelsisstyttan og margt fleira. Eitt af því skemmtilegasta sem við gerðum voru ferðir í Alhambra-höllina í Granada og til Gíbraltar. Fyrir þá sem vita það ekki var Alhambra höll mára sem voru múslimar og konungshjónin Ferdinand og �sabella (sem voru kristin) tóku svo þar völdin á 15. öld (held ég alveg örugglega). Þetta var bara ÓTRÚLEGA gaman og við skoðuðum allt og meira segja móttökusalinn þar sem er sagt að Kristófer Kólumbus hafi komið í þegar hann vildi fá styrk hjá konungshjónunum til að sigla...æ þið munið fjólubláa sögubókin;) Allavena hefðum við ekki viljað missa af þessu! Önnur frábær ferð var til Gíbraltar en eins og margir vita haf Bretar verið með yfirráð þar síðan 1700 og eitthvað. Þar var eins og maður væri kominn í annað land, allstaðar töluð enska, rauðir póstkassar og símaklefar og löggurnar með þið vitið þessa háu lögguhatta með stjörnunni á. Við keyrðum í litlum rútum upp Gíbraltar-klettinn og stoppuðum nokkrum sinnum á leiðinni, m.a. við útsýnispall þar sem sást til Afríku! En það skemmtilegasta var að sjá apana sem halda sig í hlíðum Gíbraltar-klettsins. Þeir eru þvílíkt forvitnir og spakir en eru auðvitað rándýr (eins og fararstjórinn sagði) og við áttum ekki að klappa þeim heldur þeir að klappa okkur enda geta þeir bitið. Einn stór api tók t.d. ís af einni konunni og smjattaði svo á honum, einnig hoppuðu þeir á allar rúturnar og reyndu að komast inn í þær svo ekki mátti hafa opna glugga þar en bílstjórinn hafði pínu rifu og lítill api reyndi alltaf að troða hausnum þar í gegn og þá náttúrulega hlógum við mikið!! Ojú sólin skein á hverjum degi en við fórum einu sinni í sólbað á ströndinni í 2 tíma og lágum stundum í sundlaugargarðinum en bara stutt í einu. Svo fórum við í dýragarð sem var mjög flottur og meira að segja leðurblökur héngu yfir okkur án þess að net eða eitthvað væri á milli! Við fórum líka til Malaga að skoða okkur um og svo auðvitað skoðuðum við bæinn okkar líka Torremolinos. Við hefðum alveg getað gert fleira sem við höfðum talað um en síðustu dagana var maður bara svo dasaður í sólinni! Og hvað haldið þið, ég komst að því að strákur sem fór oft með Grétari í borðtennis á hótelinu er náskyldur mér takk fyrir, við erum þremenningar!Fyndið! Ég veit ekki hvar ég á að stoppa, frá svo mörgu að segja en ég segi ykkur frá hinu þegar við hittumst! Allavena frábær ferð í alla staði!
En í annað, ég fór í brúðkaup í gær og það var mjög gaman og á morgun byrja ég að vinna...svaka spennó;)
En sjáumst
Kveðja,
Marta María

Marta María at 12:26


Comments: Skrifa ummæli