þriðjudagur, ágúst 03, 2004
Allt fínt í sveitinni!
Ég er komin aftur í siðmenninguna í sveitinni eftir að hafa eytt Verslunarmannahelginni með vinum og ættingjum í Flatey. Ég trúi varla að ég eigi ekki eftir að koma til Reykjavíkur í mánuð og ég held að það hafi bara aldrei gerst áður. Ameríkanarnir komu í dag og ég er ekki frá því að amerísk börn eru hávaðasamari heldur en óþekktarbelgirnir sem eru búnir að vera hér í allt sumar!! Ætluðum við að fara að sjá Hárið allar saman eða hvernig var það? Er komin einhver dagsetning? Og hvenær á þetta kokteilboð að vera hjá Ásgerði og Bryndísi? Ég hlakka ótrúlega mikið að sjá ykkur þegar ég kem heim :) LOV U
Eyrún at 17:38