Æææ hvað lífið er ljúft.. Já hvað er gott að vera komin loksins í langþráða fríið mitt...svosem ekki mikið sumarveður úti, rigning og rok, en mér er alveg sama, var til dæmis í dag undir teppi og las í bók meðan rigningin dundi á glugganum. En svo er svona ýmislegt sem ég þarf að gera, t.d. að þurrka ryk úr hillunum í herberginu mínu, skipta á rúminu, ryksuga og svona þið vitið, verður að líta vel út áður en skólinn byrjar í lok mánaðarins.
Ég var í brúðkaupi um helgina hjá vini hans Grétars, fyrsta brúðkaupið í vinahóp hans, og það var svooooo gaman. Stefán Hilmars og Eyvi spiluðu 3 sæt lög í kirkjunni og svo var veisla þar sem var ótrúlega góður matur og vín með honum og súkkulaðibrúðkaupskakan var ÓMÓTSTÆÐILEG! Grétar var veislustjóri og stóð sig svo vel að aðrir í vinahópnum eru búnir að "panta" hann fyrir sín brúðkaup (hvenær sem þau verða) ;)
Fyrir þá sem vissu það ekki fór ég fimmvörðuhálsinn um verslunarmannahelgina, semsagt á milli Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls, og JÁ ég er hreykin af sjálfri mérenda hef ég ekki einu sinni farið Esjuna. Ég þurfti að glíma við lofthræðslu enda kannski ekki skrítið þar sem ég þurfti að halda mér í keðjur utan á bergi á tímabili fikrandi á örmjórri syllu, vitandi að um 50 metrar væru fyrir neðan mig og það þyrfti ekki að spurja að leikslokum ef eitthvað myndi klikka þarna...já ég get sagt það að ég átti ekki von á þessu þegar ganga mín hófst fyrr um daginn get ég sagt ykkur og þegar (mér EKKI til mikillar gleði) að stálpinnarnir sem héldu í keðjurnar voru búnir að losna á nokkrum stöðum (ekki mjög traustvekjandi) þannig að keðjurnar héngu þið vitið svona langt niður, þá hugsaði ég með tárin í augunum "hvað er ég komin útí??!" en með þrjósku og "ÉG SKAL" hugsunarhætti reddaðist þetta og váááá hvað ég var fegin þegar þessi kafli var búinn. Fimmvörðuhálsgangan er allavena 1 það svona eftirminnilegasta sem ég hef gert í sumar.
Dagbjört manstu þegar þú bloggaðir um hvað væri vondur dauðdagi?? Allavena má bæta við á þann "lista" flugslys eins og á Grikklandi..úff ekki gaman að heyra svona fréttir þegar maður er ekki ÆSTUR í að fljúga!
Jæja ég hef ekkert farið til útlanda í sumar, það verður bara að bíða betri tíma..en er þessa dagana að hugsa um iPod í staðinn, langar svolítið mikið í svoleiðis græju sko;)