Skemmtinefnd 2005 kynnir: 19. maí Eurovison heima hjá Ósk
21. maí Eurovision (vonandi) og Singstar partý heima hjá Bryndísi, gestir velkomnir :) Passið þó upp á að það er söngskylda fyrir alla sem láta sjá sig
18. júní Árshátíð saumaklúbbsins :) Nauðsynlegt er að taka frá allan daginn og er verðviðmiðið 3500 kr. Skráning fer fram í kommentakerfinu hér
Með von um góða þáttöku, ykkar skemmtinefnd :)
Bryndis Julia at 22:25
föstudagur, maí 13, 2005
Loksins... ...segi ég nú bara! :) Ahhh hvað ég er sátt við að vera búin í prófunum, ég er svo ánægð að ég er ekki einu sinni að pæla hvernig mér hafi gengið á prófinu...sumarpróf eða ekki sumarpróf...gæti ekki staðið meira á sama! ;)
Núna ætla ég bara að njóta þess að hanga, horfa á sjónvarpið og gera ekki neitt í allt sumar! :) ...svo náttúrulega byrjar vinnan á þriðjudaginn en mér finnst það bara gaman því vinnan mín er draumur í dós! :D
Ég vildi bara deila hamingjunni með ykkur... ætla að dröslast í sturtu því að Hannes minn er svo yndislegur að hann ætlar að bjóða mér út að borða í tilefni dagsins! :)
Sé ykkur vonandi fljótlega -Anna Lísa
P.s. það eru bara 5 dagar þar til Dagbjört kemur heim...:D
Anna Lisa at 18:30
miðvikudagur, maí 11, 2005
Próflok......:) Hæhæ allar saman! Já þið heyrðuð rétt, er búin í vorprófunum!!!veiiii!!! Eins og ég er nú búin að bíða eftir þessum degi lengi! Og nú fer maður að taka til hendinni eftir þetta próftímabil...skipta á rúminu, taka til, þvo og þurrka af..já og svo eru það klipping og strípur í dag! Vonandi fæ ég höfuðnudd!;) Og síðast en ekki síst ætla ég að horfa á World Americas next Top model í kvöld með GÓÐRI samvisku. En á morgun byrjar svo næsta "tímabil", þ.e. vinnutímabilið, byrja að vinna á fullu á morgun..en þangað til slappa af.
Hérna var síðasti þáttur ER í síðustu viku síðasti þátturinn af seríunni?? (vá mörg "síðasta")..eins og hann endaði spennandi!!
Jæja, sit hér í VRII, alltof þungt loft hérna inni, ætla út í góða veðrið..see you!!!
Marta María at 10:53
Skemmtilegt, þaggi?!?! ...er farin að horfa á Lucas beibí í One Tree Hill! :)
Anna Lisa at 19:53
fimmtudagur, maí 05, 2005
Jæja...
Þá er fyrra prófið mitt búið og bara eitt eftir! Prófið var munnlegt og gekk alltílæ.
Hitt var hins vegar alveg skelfilegt að með ákafanum í mér og brussugangnum tókst mér að slá bók í vatnsglas hjá kennaranum og hella yfir öll blöðin hans! Ég fór náttúrulega alveg í rusl en stöllurnar sem prófuðu mig voru hinar rólegustu og sögðu mér bara að halda áfram meðan önnur þeira hristi blöðin og náði í pappír til að þurrka þetta upp.
Þetta lækkar nú örugglega ekki einkunnina og kannski bjargaði þetta bara annars tilbreytingarlausum degi hjá þeim!
E.S. Ég veit um síðu með nágrannaþáttum en ég ætla ekki að setja slóðina hérna inn fyrr en allir eru búnir í prófum. Þið hafið þá eitthvað að hlakka til ;o)
Ósk at 14:16