föstudagur, október 28, 2005
Það snjóar og snjóar og mér finnst það æði! :)
Ég elska svona veður þar sem maður neyðist bara til þess að hanga inni, undir teppi og hafa það náðugt!
Ég var reyndar að keyra áðan leið sem tekur mig venjulega 5-10 mínútur að keyra en var núna um 25 mínútur ...ég naut þess bara að vera inni í hlýjunni að hlusta á góða tónlist! :)
Ég vona bara að það eigi eftir að snjóa meira og meira og meira....
Sjáumst syngjandi kátar hjá Bryndísi á morgun! :*
Anna Lisa at 19:30
miðvikudagur, október 19, 2005
Venjulega man ég ekki brandara, en þegar þeir eru stuttir og laggóðir þá eru meiri líkur á að þeir festist í þessum svokallaða heila mínum!
Þessi er nógu stuttur og kjánalegur til að láta muna eftir sér! ;)Afhverju fara konur alltaf í háhælaða skó og mála sig?
Afþví að þær eru svo litlar og ljótar!!

Anna Lisa at 19:58
þriðjudagur, október 18, 2005
Sing Star!!!!!Jæja þá er komið að SingStar partýi vetrarins!!! Þann 29. október næst komandi verður sem sagt SingStar partý heima hjá mér klukkan 21 og er öllum söngfuglum boðið að mæta!!! Var ég búin að segja að þetta er SingStar partý??? :)Hlakka til að sjá sem flesta!!!!!!!!!RSVP People!!!
Bryndis Julia at 11:05
miðvikudagur, október 05, 2005
Námskeið fyrir karlmennÉg var að fá sendann þennan póst frá pabba...sem veit greinilega upp á sig skömmina, hehehe! ;)NÁMSKEIÐ FYRIR KARLA!!!
ALLIR VELKOMNIR
AÐEINS FYRIR KARLAAthugasemd: námskeiðin eru flókin þannig að aðeins átta geta sótt
hvert námskeið
Hvert námskeið tekur tvo daga og efnið er eftirfarandi:
FYRRI DAGUR
HVERNIG Á AÐ FYLLA ÍSMOLAMÓT ?
Skref fyrir skref með glærusýningu
KLÓSETTRÚLLUR VAXA ÞÆR Á KLÓSETTRÚLLUHALDARANUM? Hringborðsumræður
MUNURINN Á RUSLAFÖTUM OG GÓLFI
Æfingar með körfuefni (teikningar og módel)
DISKAR OG HNÍFAPÖR: FER ÞETTA
SJÁLFKRAFA Í VASKINN EÐA UPPÞVOTTAVÉLINA?
Pallborðsumræður nokkrir sérfræðingar
AÐ TAPA GETUNNI
Að missa fjarstýringuna til makans Stuðningshópar
LÆRA AÐ FINNA HLUTI
Byrja að leita á réttum stöðum í stað þess að snúa húsinu við gargandi Opin
umræða
SEINNI DAGUR
TÓMAR MJÓLKURFERNUR; EIGA ÞÆR
AÐ VERA Í ÍSSKÁPNUM EÐA Í RUSLINU?
Hópvinna og hlutverkaleikir
HEILSUVAKT; ÞAÐ ER EKKI HÆTTULEGT
HEILSUNNI AÐ GEFA HENNI BLÓM
PowerPoint kynning
SANNIR KARLMENN SPYRJA TIL VEGAR ÞEGAR ÞEIR VILLAST
Sönn saga frá manninum sem spurði til vegar
ER ERFÐAFRÆÐILEGA ÓMÖGULEGT
AÐ SITJA ÞEGJANDI MEÐAN HÚN LEGGUR BÍL?
Ökuhermir
AÐ BÚA MEÐ FULLORÐNUM; GRUNDVALLARMUNUR Á ÞVÍ AÐ BÚA MEÐ MÖMMU ÞINNI OG MAKA Fyrirlestur og hlutverkaleikir
HVERNIG Á AÐ FARA MEÐ EIGINKONUNNI Í BÚÐIR Slökunaræfingar, hugleiðsla og öndunartækni
AÐ MUNA MIKILVÆGAR DAGSETNINGAR
OG AÐ HRINGJA ÞEGAR ÞÉR SEINKAR
Komdu með dagatalið þitt í tímann
AÐ LÆRA AÐ LIFA MEÐ ÞVÍ
AÐ HAFA ALLTAF RANGT FYRIR SÉR
Einstaklingsráðgjöf og samtöl
Anna Lisa at 17:44