sunnudagur, apríl 30, 2006
Leeds baby yeaaaahhh...;)
Já gott fólk, nú er búið að panta miða út til London eftir próf. Eftir miklar vangaveltur og eftir að hafa ekki farið til útlanda svoo lengi þá ætlum við Grétar að fljúga til London en tökum svo lest til Leeds þar sem vinur hans og kærasta búa og verðum þar:) enda ekki annað hægt en að þiggja gott heimboð frá þeim.
Nú ég fæ náttúrulega að kíkja í búðir og svo förum við eitthvað að túristast líka. Jájá þetta verður bara stuð..og ekki má gleyma því að undankeppni eurovision verður 18. maí sem þýðir að við Íslendingarnir úti verðum AÐ SJÁLFSÖGÐU að kjósa hana tremma mikið sko..og ef (ÞEGAR) hún kemst áfram í aðalkeppnina þá kýs ég aftur..já og svo veit ég að Silvia Nótt fær líka nokkur atkvæði frá Þýskalandi þar sem Silvia und Familie verða í Þýskalandi yfir eurovision!
En hvað er málið með alla þessa vélsleðamenn sem geta ekki haft almennilegan tækjabúnað með sér upp á hálendi, fjarskiptatæki o.þ.h. Orðið ansi þreytandi þessi endalausu útköll þyrlu og hjálparsveita útaf svona kæruleysi. Ef þessir menn geta keypt sér vélsleða þá geta þeir alveg keypt sér öryggistæki. Það ætti að setja á lög, þar sem menn væru sektaðir ef kæmist upp um þá þar sem þeir væru ekki með viðeigandi fjarskiptatæki og hananú! ..hummm svo er (sýnist mér) fangarúta fyrir utan húsið mitt og búin að vera í nokkra daga, svona grá stór amerísk álrúta með grindum fyrir gluggana..maður spyr sig, eru hryðjuverkamenn sem dvelja þarna eða eru þetta Sjálfstæðismenn að safna saman þessum fáu vinstri mönnum í Safamýrahverfinu og fara með þá í Guantanamo fangelsi!? Já maður spyr sig...
Ennnn nú styttist í prófin og maður þarf víst að halda áfram að læra..hvet alla í saumaklúbbnum að blogga, ekki þarf meira en tvær málsgreinar um heimspekilegar pælingar dagsins..
Marta María at 18:25