Hekla pekla sekla tekla.. Já nú er maður búinn að fara á eitt af frægustu eldfjöllum heims, Heklu, og gekk bara vel. Sunnudagsmorgun síðastliðinn var vaknað kl. hálf átta, klárað að pakka nestinu og klætt sig í svona "útivistarföt". Við Grétar eyddum miklum vangaveltum í það hvort við værum ekki með of mikið af drykkjum enda nokkrar hálfslítersflöskur fljótar að þyngja bakpoka hjá fólki sem er að fara að labba í 1500 metra hæð..anyways eftir að hafa þá tekið svona tvær flöskur uppúr áttum við samt nóg eftir af nesti og drykkjum handa öllum Hekluförunum. Þá var haldið á BSÍ og rúta full af 30 manns og tveimur fararstjórum hélt af stað.. á leiðinni vorum við frædd um eldfjallavirkni Heklu o.s.frv. og að gosin hjá Heklu gerðust yfirleitt fyrirvaralaust..OK ekki alveg það sem ég vildi heyra þarna en alltílæ.. Veðrið var allskonar, fyrstu metrana var fínt veður og við borðuðum nesti í sól og logni, svo eftir að ofar dró þá gengum við bara á snjó, og haglél og rok og frost var allsráðandi og þetta var ýkjulaust hið versta vetrarveður! Þegar fararstjórinn leit á GPS staðsetningartækið sitt og sagði að við værum ekki alveg komin á efsta punkt Heklu héldum við áfram uppávið í brjáluðu veðri og þá fór ég að hugsa.."OK mér er orðið ANSI kalt á puttunum, og hvað ef þeir fara að kala!?og ég verð orðin svo dofin að ég mun ekki taka eftir því!?og þá þyrfti að taka puttana af!?og ég meina, þetta er hægri hendin!?" En upp á topp komumst við og þá var VOÐA gaman og allir VOÐA stoltir þótt veðrið væri alveg "kreiisíí"! svo var haldið niðuráleið og staldrað stutt við hjá einum af gosgígnum sem gaus árið 2000 og hann var ekki stór skal ég segja ykkur, maður átti meira að segja að geta fundið hitann ennþá í hrauninu í kring. Og nú hugsa kannski e-r: ææ leiðinlegt að hafa ekki fengið útsýni á toppnum, en ég get huggað mig við það að einn fararstjórinn sagði mér að hún væri búin að fara nokkrum sinnum og aldrei fengið útsýni og einnig hafði hún sömu sögu að segja af öðrum fararstjóra sem í 9. eða 11. skipti fékk útsýni af topp Heklu svo það þyrfti að vera mjög sérstakt veður til að fá gott útsýni!