miðvikudagur, september 20, 2006
Hæ allir saman!Nokkrir hugleiðingapunktar sem er víst betra að vita ekki...(fengið að láni frá Sollu;)1) Eftir eins tíma sundferð hefur þú komist í snertingu við hálfan lítra af þvagi.
2) Á meðaldegi kemst þú í óbeina snertingu við 15 tippi, t.d. við að taka í hurðarhúna.
3) Árleg neysla meðalmanneskju á skyndibitamat inniheldur 12 kynfærahár.
4) Á einu ári gleypir þú 14 skordýr í svefni.
5) Á einu ári heilsar þú með handabandi 11 konum sem hafa nýlega "snert sig" og gleymt að þvo sér um hendurnar.
6) Á einu ári heilsar þú með handabandi 6 körlum sem hafa nýlega "snert sig" og gleymt að þvo sér um hendurnar.
7) Flestir karlmenn þvo alls ekkert á sér hendurnar eftir að hafa verið á klósettinu. Veltu því fyrir þér næst þegar þú ert á barnum og færð þér hnetur úr skálinni á barborðinu.
8) Í meðalbrúðkaupi hefur þú hundrað möguleika á að smitast af frunsu frá einum gestanna.
9) Þú andar daglega að þér hálfum lítra af endaþarmsgasi frá öðrum.
10) Tannlæknar telja að tannburstar verði að vera í a.m.k. tveggja metra fjarlægð frá klósettskálinni til að sýklar í loftinu frá skálinni festist ekki á burstunum.
11) Þú eyðir sex mánuðum lífs þíns á klósettinu.
12) Ef þú nagar neglurnar innbyrðirðu meira magn sýkla en ef þú sleiktir hreina klósettskál.
....þetta var nú hressandi fannst ykkur ekki? :) Allavena fannst mér það.Miðað við punkt nr. 1 þá kemst ég allavena í snertingu við svona 2 lítra af þvagi á viku...kannski er minna um þvag í Sundhöll Reykjavíkur en í Laugardalslaug...ætla að athuga það á morgun hahaha
..átti eitt skemmtilegasta msn-samtal mitt hér áðan...þannig var að ég var að tala við Sollu svakalegu tæknivæddu..og svo bauð hún mér að sjá sig í vefmyndavélinni sinni...OK...svo birtist hún (í svona slow motion)....og vinkar, mjög fyndið, og svo fer hún að troða einhverri forsíðu á bók/hefti í linsuna...nú ég hugsaði um stund.."ekki er hún að sýna mér forsíðu með e-m berum körlum!?..."..en nei þá var þetta íslenskubók í EDDU...og ég sagði við hana hvað ég hefði haldið að þetta væri....heyrðu mig nú, þá fer mín í burtu og nær í stórt almanak fyrir árið 2007 af berum Hawai karlmönnum og bara ALLT í linsuna takk fyrir...hahahahahahahahaha...æææææ...hahahahahahahaha
Þið eruð frábær!
Marta María at 22:50