þriðjudagur, febrúar 28, 2006
Amma Ragnheiður vs. Silvía Nótt...
...hlusta hér......ja maður spyr sig hvor sé betri?! ;)
Anna Lisa at 22:16
sunnudagur, febrúar 19, 2006
Skemmtileg helgi eða hvað? Vísó, afmæli og bærinn Föstudagurinn byrjaði snemma á vísindaferð í KB-banka með Sóldísi, Unni og fleiri skemmtilegum sálfræðinemum! :) Gaurinn sem hélt kynninguna fyrir okkur talaði í mesta lagi 10 mínútur og svo máttum við bara ráðast á veitingarnar og kjafta...almennilegt! ;) Frá KB-banka fórum við í smá stund á Pravda en við Sóldís stoppuðum stutt þar sem við vorum báðar á leið í afmæli.... Frá Pravda fór ég svo í afmæli til hennar Mörtu Maríu skvísu! ;) Þar var sko borðað og hlegið mikið...ég var orðin aum í kinnunum svona í lokin! Sögurnar sem standa upp úr eru pottþétt þessar frá “sumrinu 2001” og um þýska strákinn Peter sem Silvía hitti á Óliver! :D Svo fórum við Marta María og Silvía í bæinn þar sem við dönsuðum og trylltum lýðinn ;) ... ég held að ég hafi sjaldan dansað jafnmarga furðulega hóp-hringdansa! :Þ Ég held að ég hafi sjaldan skemmt mér jafnvel, enda kom ég heim á sama tíma og Mogginn barst í hús! ;) Takk ótrúlega mikið fyrir frábært kvöld stelpur!! :* (framhald í færslu hér að neðan því að blogger.com er með e-a stæla við mig! ;) )
Anna Lisa at 22:30
framhald...
Þorrablót og Eurovision
Á laugardaginn skelltum við Hannes okkur svo til Hveragerðis á þorrablót...borðtennis, pool og heitur pottur að ógleymdum hákarli og súrsuðum mat...ég hélt mig samt að mestu bara við þetta “venjulega” sem var í boði! ;) Allir voru í miklu stuði og ekki minnkaði það þegar við horfðum á Silvíu Nótt og hinar upphitunarhljómsveitirnar! ;)
Konudagurinn, nýir skór og flutningar
Á sunnudaginn svaf ég sko út...það er alveg það besta í heimi að sofa lengi og kúra svo frameftir! Ekki var það verra að Hannes skellti sér út í bakarí, svona í tilefni dagsins, til að gleðja sælkera sælkeranna...moi! ;) Skellti mér svo í Kringluna og splæsti í þessa fínu Adidas strigaskó... loksins drullaðist ég til að kaupa mér e-a skó, er búin að vera á leiðinni í ég veit ekki hvað langan tíma!
Eftir Kringluferðina fór ég til Bryndísar, fékk mér bollur og hjálpaði þeim skötuhjúm svo að flytja í nýju fínu íbúðina...til hamingju aftur Bryndís og Skúli! :*
Í alla staði frábær helgi og morgundagurinn virðist ekki ætla að verða neitt síðri þar sem Unnur Vala sálfræðiskvísa á afmæli og hún ætlar að bjóða okkur í hádegis-afmælisboð, mmmm...! :)
Kristín, mér líst ótrúlega vel á að lífga upp á síðuna okkar, læt þig fá myndir sem fyrst!
...en stelpur, bara svona pæling, ætluðum við að skipta um nafn eða eigum við að halda okkur við þetta yndislega “bráðabirgðanafn”? Hvað finnst ykkur?Eníhú...hlakka til að sjá ykkur allar hjá Kristínu á föstudaginn! :*
Anna Lisa at 22:29
laugardagur, febrúar 18, 2006
Saumaklúbbur og Eurovision
Nú er komið að saumaklúbbi febrúar-mánaðar. Hann verður föstudaginn 24. febrúar heima hjá mér klukkan 20:00. Endilega látið mig vita með kommenti, sms-i, símtali, emili, dyraati eða bréfdúfu hvort þið komist eður ei.
En í sambandi við Eurovision, þá datt mér í hug að bjóða ykkur að mæta galvaskar að horfa á forkeppnina með mér í kvöld. Það væri jafnvel hægt að taka í spil eða kíkja í Singstar þegar keppnin er búin ef að áhugi er til staðar ;). Það má þá láta mig vita hvort þið komist en annars ætla ég líka að láta ykkur vita af þessu með persónulegri hætti þar sem ég þekki netvenjur sumra ykkar :)!
P.S. Mig vantar myndir af ykkur. Allar eiga að láta mig fá mynd af sér þar sem þær eru sátar við höfuðið. Það þarf ekkert annað að sjást á myndinni. Ef þið finnið fleiri en eina mynd sem koma til greina þá mega þær endilega fljóta með. Og svo ætla ég að frekjast og biðja um uppáhalds myndina ykkar af ykkur þegar þið voruð litlar. Það skiptir ekki máli hvort þær eru á stafrænu- eða pappírsformi. Já, og ástæðan fyrir þessari ósk er sú að mig langar til að breyta síðunni í eitthvað sem er ekki svona ljótt. Ég geri ráð fyrir að það verði allir ánægðir með það framtak mitt ;)! (Málfræðilögreglan er á hælunum á mér fyrir ofnotkun á orðinu ykkur í þessari færslu...)
Kristín at 12:06
þriðjudagur, febrúar 14, 2006
AFMÆLI!!!Þá er komið að því að enn einn nafngreindur aðili ónafngreinda saumaklúbbsins á afmæli! Þar sem ég verð 23 ára á föstudaginn er ykkur boðið í smá teiti til mín á föstudagskvöld kl.20:00!Makar eru velkomnir.Svo verður bara séð til hvernig kvöldið þróast og ef stemning er að kíkja í bæinn má skoða það;) (by the way þar sem ég verð afmælisbarnið og fæ að ráða hehe þá fer ég EKKI seint í bæinn, ef ég fer þangað, því ég ætla ekki að eyða afmælisnóttinni í að standa í biðröð;))Þá er fólki velkomið að koma með sitt eigið áfengi ef það vill fá sér í glas.Vonandi sé ég ykkur sem flestar...Hlakka til að sjá ykkur...:):)Kveðja frá mér...
Marta María at 22:24
mánudagur, febrúar 06, 2006
AFMÆLI!!!

Til hamingju með afmælið Dagbjört! :)
Anna Lisa at 16:40
fimmtudagur, febrúar 02, 2006
Ef....
ykkur langar að taka forskot á sæluna og hlusta á lagið með Silviu Nótt sem tekur þátt í eurovision þá kíkið á þessa slóð....
http://www.flurl.com/uploaded/Eurovision_lagid_55040.htmlNjótið...
Marta María at 20:07