föstudagur, maí 19, 2006
Sjúkket!!!Sjúkket mar :) Ég er enn með hár á hausnum, allavegana nokkur :) Vildi bara minna á
Útskriftar/Júróvísjón partý á morgun. :) Gleðin hefst um sjö leytið en ef þið viljið koma fyrr eða seinna er það náttúrulega lítið mál, Þætti vænt um að sjá ykkur sem flestar í Setberginu á morgun :)P.s. Það er vel þess virði að leggja leið sína í Hafnarfjörð til þess að sjá nýju greiðsluna :) Hún er KREISÍÍÍÍ....
Kve, Eyrún partýdýr!!
Eyrún at 18:03
þriðjudagur, maí 16, 2006
Evróvisjón = vorJæja, stúlkur nú er komið að því. Á fimmtudagskvöldið mun Silvía Nótt stíga á svið og verða okkur til skammar...eða bara til gleði og skemmtunar :). Ég verð ein heima og bíð ykkur því í ekta Eurovision-party að hætti Íslendinga (hversu mikil guðsgjöf er undankeppnin? TVÖ Eurovision party á hverju ári!). Þær sem sjá sér fært að mæta mega gjarnan láta mig vita einhvern veginn ;).
Knús, Kristín sem er búin í prófum!!!
Kristín at 12:03
þriðjudagur, maí 09, 2006
Í gær....*fékk ég póstkort frá Ameríkuförunum, takk fyrir það Bryndís, Eyrún og Kristín:*..og í gær og í dag og næstu daga langar mig í stafræna myndavél..ég meina 2 brúðkaup á næstunni skilurru!! Ég held að ég verði að mæta ansi snemma í fríhöfnina ef ég ætla líka að fara að skoða myndavél en ekki bara snyrtivörur og tímarit......það er nú svoldið illa farið með okkur prófafólk að hafa svona gott veður...síðustu daga hef ég verið með hausverk, annað hvort útaf lærdómsstreitu eða sólsting...en nei ég held að sólstingur sé svoldið langsótt hjá mér... ...það er svo gaman að skoða bloggsíður, maður er inni á einni síðu og svo er þetta orðið af einhverri keðjuverkun þar sem maður endar hjá einhverjum sem maður kannast við en hélt að eigandi síðunnar þekkti ekki...já þetta er lítið land..
Marta María at 21:58
mánudagur, maí 08, 2006
Hallllóóóóó´!!??
Nú liggja niðurstöður kennslukönnunar Háskóla Íslands fyrir og svarhlutfall var eftirfarandi eftir deildum innan skólans:
Guðfræðideild 50,77%
Læknadeild 18,49%
Lagadeild 31,10%
Viðskipta- og hagfræðideild 38,43%
Hugvísindadeild 41,38%
Lyfjafræðideild 41,12%
Tannlæknadeild 4,20%
Verkfræðideild 42,47%
Raunvísindadeild 47,61%
Félagsvísindadeild 50,66%
Hjúkrunarfræðideild 34,71%
..og þetta finnst mér léleg þátttaka (eins og alltaf reyndar) og af hverju í ósköpunum? sumir hugsa: "kennararnir þurfa ekkert að fara eftir þessu" og allt það..en bíddu, það eru vonandi e-r góðir kennarar með samvisku í Háskólanum sem langar að vita niðurstöðurnar, bæði það sem mætti bæta OG skemmtileg og jákvæð hrós. Allavena myndi ég vilja sjá niðurstöðurnar ef ég væri kennari þarna. Og aðrir hugsa "já en hvað hefur þetta áhrif á mig þar sem ég verð (væntanlega) búin með kúrsinn þegar kennarar geta farið að skoða niðurstöður könnunarinnar"..en ég vona að fáir hugsa svona því þá er maður bara að hugsa um rassgatið á sjálfum sér, allavena finnst mér frábært ef nemendur á undan mér hafa átt þátt í að kennarar kenni kúrs betur þegar kemur að mér og öðrum...en já svona er þetta, finnst þetta bara ósköp sorglegt, að fók skuli ekki geta gefið sér nokkrar mínútur í þetta..en að sjálfsögðu þyrfti að gera kannanirnar markvissari, þ.e. að allir kennarar myndu skoða þær og bæta sig!;)
..en jæja, e-ð blogg er betra en ekki neitt ekki satt..;);)
..ætla að halda áfram að borða ísinn minn..
...ástarkveðjur...
Marta María at 21:20
laugardagur, maí 06, 2006
Þessar hlussur....
...eru úti um allt!!
Ég hef ekki undan að loka gluggunum því það eru e-r brjálaðar býflugur að reyna að komast inn...þær eru ekki velkomnar!
---
En nú er ég bara að rembast við að halda einbeitingu yfir lærdómnum...eitt próf eftir og 5 dagar í sumarfrí!!!
--- Það gengur ekkert allt of vel sko, ég var búin að reikna með að lesa 60-100 bls á dag og þá myndi ég ná þessu...mér fannst ég nokkuð bjartsýn þá!
---
Nú eru þessar blaðsíður orðnar um 300 á dag...hehehe...þetta hlýtur að reddast! ;)
---
Gangi ykkur vel!
-Anna Lísa og býflugurnar!
Anna Lisa at 21:45
*Í dag er megrunarlausi dagurinn! Til hamingju...;)*
Marta María at 18:33