þriðjudagur, desember 26, 2006
Litlu Jólin...verða haldin hátíðleg þann 27. desember næstkomandi. Allir eiga að mæta með pakka að andvirði 1500 kr. Mæting um 8 leitið. Hlakka til að sjá ykkur.
Litli Jólasveininn.
Eyrún at 03:10
laugardagur, desember 23, 2006
Gleðileg jól stelpur mínar og takk fyrir það gamla! Hafið það ofboðslega gott yfir jólin og borðið nú vel af öllum kræsingunum sem verða í boði!!! Sjáumst hressar og kátar sem fyrst...Jólakveðja..Marta María:)
Marta María at 23:46
miðvikudagur, desember 20, 2006
Þessi sæta stelpa á afmæli í dag!!
Til hamingju með afmælið Bryndís mín! -Anna Lísa
Anna Lisa at 20:05
föstudagur, desember 15, 2006
Sælar stúlkur mínar :)Eru ekki allar að verða búnar í prófum núna? Verðum við ekki að fagna því almenninlega t.d. með ísferð í Fákafenið? :D Það er nú ansi langt síðan það var ísferð síðast!Síðan var lítil fluga sem hvíslaði að mér að það væri lokaball hjá HÍ á fimmtudaginn og jafnvel að hin eina og sanna Sál væri að spila!!!! Er það rétt? Getur einhver af ykkur HÍ gellum staðfest þetta? Ef þessar fregnir eru sannar hvernig líst ykkur á að skella sér á ball? Það var allavegana gífurlega gaman síðast (sem var held ég í fyrra) og ég væri sko alveg meira en til í að fara aftur :)"Hey Kanínur...komiði í partý...." :PP.s. Dagbjört, það er allt í lagi ef þú vilt bara koma í ísferð en þér er samt velkomið að koma með á Sálina ef þú vilt ;) Við viljum endilega fá þig :) (ALLS EKKI meint eitthvað kaldhæðið!)
Bjarney at 19:09
laugardagur, desember 09, 2006
Bara ég aftur...Fyrst ég er nú að þessu nethangsi þá setti ég inn tengla á Myspace-síður okkar sem eiga svoleiðis hér á hliðinni! :Þ
Anna Lisa at 16:38
Hrumpfff....
Oh, ég ákvað að skella mér í bað þar sem ég var öll svo stíf eftir prófið í morgun!
Ég kveiki á kertum og á útvarpinu, set á “Jólastöðina okkar allra, Létt-Bylgjuna” tilbúin að slaka á og hlusta á skemmtileg jólalög og komast í jólagírinn!
En ég held nú ekki!
Það eina sem var spilað á þessari stöð voru auglýsingar, væmið amerískt kántrí-”jólalag” og vooond íslensk jólalög sungin af óþekktum (af ástæðu myndi ég segja) íslenskum söngkonum sem syngja:
Jóhólihihin kohohoma vóhóúúú...jéé...vooóó..............je..
Pirrr...ég sem hékk í baðinu þar til tærnar á mér voru orðnar krumpaðri en Eyrúnar táslur!!
Ætla nú að finna almennilegan jóladisk og reyna að bæta skaðann!
-Anna Lísa Sveskja! :Þ
Anna Lisa at 15:44
Mmmmm.....dah!

Oh hvað það er yndisleg tilfinning að vera búin í ömurlegasta og leiðinlegasta prófinu!! :D
Það er reyndar ekki alveg jafn góð tilfinning að fara í próf og vita að það eru ca.10% líkur á að maður nái... ég ákvað samt að skella mér, vera bjartsýn og vona það besta og hey...líkurnar hafa aukist í 20-30% !! :Þ
Það er þungu fargi af mér létt... í bili allavega! ;)
Í dag ætla ég bara að njóta þess að taka til í herberginu mínu (er það hægt?) og setja jólaseríur í gluggan minn! ... Kristín fylgstu vel með! :Þ
Hafið það gott dúllurassgötin mín og gangi ykkur vel í prófunum! ;) -Anna Lísa-
P.s ef þið viljið rifja upp gamlar og góðar stundir með Línunni, þá getið þið kíkt hér! ;)
Anna Lisa at 13:06
þriðjudagur, desember 05, 2006
Ég ákvað að spreyta mig á þessu líka...svona fyrst ég á að vera að gera eitthvað annað... ;)IF YOUR LIFE WAS A MOVIE, WHAT WOULD THE SOUNDTRACK BE? (Viltu vinur minn vita, ef líf þitt kvikmynd væri, hvurskyns músík hún bæri?)So, here's how it works:(Soddan virkar havaríið )1. Open your library (iTunes, Winamp, Media Player, iPod, etc)(Opn þinn tónsarp (iTóna, alvöru pc mp3spilara, drasl mp3 spilara, iBú, o.s.frv)2. Put it on shuffle(Lát á vanröðun)3. Press play(Þrýst á leika)4. For every question, type the song that's playing(Sérhverri spurningu skal fylgja það lag sem leikið er á þeim tíma)5. When you go to a new question, press the next button(Þegar næsta spurning er tækluð, þrýstu á "Næsta" hnappinn)6. Don't lie and try to pretend you're cool...(Berðu ekki ljúgvitni um eiginn nördaskap).Og hér er svo afraksturinn úr mínum "tónsarpi":
Opnunartitlar: Ferry 'cross The Mersey - Gerry and the Pacemakers (Life goes on day after day...viðeigandi...)Við uppvakningu: Sing - The Carpenters (rólegt og gott en samt svona happy...gott að vakna í góðu skapi :) )Fyrsti skóladagurinn: Elenore - The Turtles (uuuu...weird stalker song...passar kannski ekki alveg...samt skemmtilegt)
Verða ástfanginn: With A Girl Like You - The Troggs (jújú...kvarta ekkert brjálað...)
Slagsmálalagið: With or Without You - U2 (ég er með í dramatík vinahópsins...)
Sambandsslit: Barbara Ann - The Beach Boys (já...ég er alla vega ekki sorgmædd... :-/)
Prom: Bad To Me - Billy J. Kramer (alveg hægt að dansa við það...)
Daglegt líf: Winchester Cathedral - New Vauderville Band (eitt steiktasta lag í heiminum...á vel við)Við andlegt áfall: Lightnin' Strikes - Lou Christie (ekki mjög slæmt áfall giska ég á...)
Keyra í bíl atriðið: Heroes And Villains - The Beach Boys (vonandi stutt atriði...ekki besti Beach Boys slagarinn...)Flassbakk: Little Old Lady From Pasadena - Jan & Dean (þokkalegt flassbakk til dagana þar sem mér fannst gaman að taka til...jebb gaman!)
Ná saman á ný við kærastann: Yesterday Once More - The Carpenters (hljómar bara ljómandi ;) )Brullaup: I Need To Be In Love - The Carpenters (textinn ekki eins uppörvandi og nafnið ber með sér...)
Barnsfæðing: Side - Travis (okei...einhver að vera fyndinn...)
Lokabardaginn: Da Doo Ron Ron - The Crystals (greinilega mjög alvarlegur bardagi...hehe)
Dauðasena: I'll never fall in love again - Páll Óskar og Millarnir (ég er greinilega kát með að maðurinn minn hafi drepið mig...??)
Jarðarfaralag: Don't Treat Me Like Child - Helen Shapiro (hef held ég aldrei hlustað á allt lagið til enda...en pottþétt ekki viðeigandi)
Lokatitlar: Somebody To Love - lag úr Hárinu (ég hef pretty much átt sorglegt og eftirsjármikið líf...greyið litla Bryndís... :( )Jæja þá er sorglegi listinn minn kominn...ekki mikið af lögum sem ég hlusta á...ætti kannski að fara í gegnum ipodinn minn...miklar pælingar...ég myndi ekki borga mig inn á þessa mynd...Oh well...
Bryndis Julia at 17:01