-Sjónvarpsdagskrá allra stöðvanna, sem er þægilegt að skoða
-Sýningartíma bíóhúsanna, sem er þægilegt að skoða.
-Aðgangur að vefblöðum, vefsjónvarpi og vefútvarpi
-Ef ykkur finnst gaman að lesa blogg þá eru skemmtilegir bloggarar sem skrifa á síðunni, t.d. Egill Helgason o.fl.
-BloggGáttin sýnir nýuppfærð blogg, annarra en skrifa á Eyjuna
-Neðst á síðunni er svo hægt að sjá nýjustu færslur á fjölmörgum síðum; innlendum og erlendum fréttasíðum, íþróttasíðum og fleiri (svona RSS-dæmi ef þið vitið hvað það er).
-...svo hef ég heyrt að á síðunni sé líka heitasta slúðrið ;)
~ Anna Lísa :) ~
P.s. Þar sem ég svona mikinn tíma til að gera ekki neitt þá breytti ég uppröðuninni á saumó hérna til hliðar á síðunni
P.p.s Hvernig væri svo svo að skilja eftir sig svona eins og eina setningu því mér leiðist... :Þ
Anna Lisa at 16:55
mánudagur, júlí 23, 2007
Hæ gellur!!
Það var dregnir nýjir mánuðir í saumaklúbbnum hjá mér um daginn og hérna eru niðurstöðurnar:
Anna Lísa = Júní Bjarney = Júlí Bryndís = Mars Ásgerður = Desember Dagbjört = Október Eyrún = Nóvember Hildigunnur = Janúar Ingibjörg = Maí Kristín = Apríl Marta María = September Ósk = Ágúst Tóta = Febrúar
Vonandi eru allir ánægðir en ef ekki þá verður eflaust hægt að ræða það í næsta saumaklúbbi sem á einmitt að vera hjá henni Ósku sætu =)
Inga at 20:27
fimmtudagur, júlí 19, 2007
Hey sætu skutlur!
Við erum svo ógeðslega skemmtilegar og fallegar og gáfaðar að það eru ekki bara stelpur og konur út um allan bæ sem þrá að vera með í okkar yndislega saumaklúbbi heldur eru líka karlmenn sem gæfu allt til þess að vera með. Rakst á blogg þess eðlis hér! Við rokkum svo feitt! Hlakka til að hitta ykkur í kvöld!
Óskin
Ósk at 14:30
mánudagur, júlí 16, 2007
Sælar stúlkur mínar og takk fyrir síðast =)
Eins og ég sagði í afmælinu hjá Kristínu þá ætla ég að halda saumaklúbb á fimmtudagskvöldið. Í þetta sinn verður þetta dinner-saumaklúbbur svo að ég slétti nú svollítið. Maturinn verður borinn á borð á slaginu klukkan 8. Vinsamlegast mætið svangar ;)
Hlakka til að sjá ykkur =)
Ingibjörg
P.S. Það væri voða gott ef þið gætum kommentað hvort að þig komið eða ekki svo að ég viti nú hversu mikinn mat ég þarf að hafa á borðum!!
Inga at 15:21
föstudagur, júlí 06, 2007
Nú eru loksins komnir páskar! :)
... ég er flutt! :Þ Við fluttum, líkt og Ósk og Sverrir, síðasta sunnudag í fínu íbúðina okkar. Við erum enn að koma okkur almennilega fyrir en þið eruð velkomnar í heimsókn hvenær sem er, ef ég er heima!
Núna í júní fæddust tveir litlir prinsar, Lydíafæddi sinn 20. júní og Þóra Hrund 30. júní - algjör bjútí báðir tveir! :)
Annars vona ég að við sjáumst sem fyrst - er farin að sakna ykkar því það er svo langt síðan ég hitti ykkur flestar :*