Frægasti meðlimur saumaklúbbsins þessa dagana er án efa fallega stúlkan í þessu myndbandi...
... þið getið haft samband við hana í gegnum umboðsmanninn hennar, Einar Bárðarson ef þið þurfið að tala e-ð við hana! ;)
~ Allir að lesa bloggið hennar Eyrúnar hér að neðan ~
Anna Lisa at 15:28
Aðventu-Saumó!
Jæja stúlkukindur, Í tilefni þess að prófin eru búin (hjá sumum) og aðventan hefst á sunnudaginn hef ég ákveðið að slá til heljarinnar veislu að heimili mínu næstkomandi sunnudag. Gleðin hefst á slaginu 20:00. Veislusjóri er Geir Ólafs og Herbert Guðmundsson mun leika fyrir dansi. Einnig verða föndraðir músastigar og piparkökur skreyttar. Nú er síðasti séns til að sletta úr klaufunum fyrir próf (fyrir hina) og því sjáumst við vonandi hressar á sunnudaginn!
P.S. Nokkrar staðreyndavillur eru í þessum texta...
Eyrún at 08:38
sunnudagur, nóvember 18, 2007
Stelpubíó Við Kristín erum að fara á No Reservations kl.20 í kvöld...þær sem hafa áhuga á að koma með eru guðvelkomnar! Miðinn kostar 350kr. :) Látið okkur vita :D
Bryndis Julia at 15:50
föstudagur, nóvember 09, 2007
"I was robbed by two men"
Nú hafa Bryndís og Kristín eytt blóði, svita og tárum í að læra japönsku í Háskólanum. Japanirnir fara öðruvísi að þessu...svona læra þeir ensku:
~ Anna Lísa ~
Anna Lisa at 22:18
fimmtudagur, nóvember 01, 2007
Hæ skutlur!
Mig langar svo að bjóða ykkur í heimsókn - kominn tími á að bjóða ykkur öllum formlega í smá heimsókn í "nýju" íbúðina mína!
Þið eruð allavega velkomnar til mín á laugardagskvöldið, svona um 20:30.
Þið megið láta mig vita sem fyrst hvort þið komist :)
...það verður pottþétt svona gaman hjá okkur líka!