Loksins loksins... ...það sem þið hafið beðið eftir í heilt ár!! Afmælið mitt :) Ykkur (og að sjálfsögðu mökum) er hér með boðið í afmælið mitt haldið þann 22.desember kl.20! Staðsetning enn óákveðin en líklegast hjá mömmu í hlíðunum! Ef það breytist þá læt ég ykkur vita... Vinsamlegast tilkynnið um komu eða ekki (og hvort makinn komi meðferðis eða ekki) hér í kommentum eða í sms-i :) Vonast til að sjá sem flestar!!
Bryndis Julia at 18:44
sunnudagur, desember 16, 2007
Litli Stóri Frændi eða Stóri Litli Frændi
Fyrst konur eru farnar að tala um barnalán skyldmenna sinni verð ég að monta mig líka
Föstudaginn 7. desember 2007 fæddist "lítill" drengur. Hann vó 21 mörk og mældist 56,5 cm. Stóru systurnar eru aldeilis ánægðar með litla bróður.
Eyrún at 18:36
Sælar dömur
Ég bara verð að fá að monta mig smá, fyrir hönd okkar Önnu Lísu, fyrir að eiga fallegustu litlu frænku í öllum heiminum :)
Sjáið hvað Beta stóð sig vel ;)
Bryndis Julia at 14:49
mánudagur, desember 10, 2007
LOVE ACTUALLY
~~~~~~~~~~~~~~
I feel it in my fingers, I feel it in my toes, Christmas is all around me, and so the feeling grows
It’s written in the wind, It’s everywhere I go, So if you really love Christmas, C’mon and let it snow Ég ætla að horfa á Love Actually á fimmtudagskvöldið. Ég býð upp á drykki og svo er öllum velkomið að taka eitthvað með til að maula ;)
Vill einhver vera memm?
(: ~ Anna Lísa ~ :)
Anna Lisa at 16:24
laugardagur, desember 08, 2007
Svoooo fallegur og hugljúfur brúðarvals....
...ég sé nú alveg fyrir mér eina á okkar Fallega-engi leika þetta eftir einhvern daginn! :Þ
~ Anna Lísa sem er aaaaallllveg að komast í lærdómsgírinn ~